Lindberg: Komnir á draumastaðinn

Hans Lindberg segir það ekki skipta máli hverjum Danir mæta í úrslitum. stækka

Hans Lindberg segir það ekki skipta máli hverjum Danir mæta í úrslitum. Reuters

Hans Lindberg, hægri hornamaður Dana, var í skýjunum eftir að liðið tryggði sér farseðilinn í úrslitaleikinn á EM í handknattleik með því að sigra Spánverja, 25:24, fyrr í dag. Danir voru ólíklegir miðað við stöðu liðsins fyrir keppni í milliriðlunum til að ná í undanúrslitin.

„Við gátum aldrei ímyndað okkur að ná í úrslitin eftir vikuna í riðlakeppninni. Þetta er ótrúlegt í ljósi þess hvað við vorum langt frá úrslitaleiknum,“ sagði glaður Lindberg eftir leikinn. 

„Núna erum við komnir á draumastaðinn, en við vorum heppnir í milliriðlinum og gegn Spánverjum,“ sagði Lindberg. Hann bætti við að vörn Spánverja hefði verið mjög góð. „Okkur gekk erfiðlega að komast nálægt markinu þeirra.“

Hann sagði það ekki skipta máli hvort liðið mætti Serbum eða Króötum í úrslitum. „Við höfum engu að tapa, það skiptir mig því engu máli hverjum við mætum.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, EM handbolta — Fleiri fréttir

Laugardaginn 24. mars

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar


finnur.is