Makedóníumenn hrepptu 5. sætið

Vladimir Temelkov leikmaður Makedóníu sækir að vörn Slóvena. stækka

Vladimir Temelkov leikmaður Makedóníu sækir að vörn Slóvena. Reuters

Makedóníumenn hrepptu 5. sætið á Evrópumótinu í handknattleik í dag og tryggðu sér farseðilinn í forkeppni Ólympíuleikanna. Leikurinn var æsispennandi en það fór svo að lokum að Makedóníumenn höfðu betur, 28:27.

Slóvenar gátu jafnað metin krist út framlengingu á síðustu sekúndu leiksins þegar Sebastian Skube komst einn gegn markverði Makedóníu, Borko Ristovksi, sem sá við Skube.

Eina von Slóvena um að komast í forkeppni Ólympíuleikanna er að Serbar verði Evrópumeistarar.

Makedónía var fjórum mörkum yfir eftir fyrri hálfleikinn, 16:12, en Slóvenar jöfnuðu metin í 18:18 og komust yfir, 21:19, þegar rúmur stundarfjórðungur var til leiksloka. En Makedóníumenn reyndust sterkari á lokasprettinum og fögnuðu ógurlega þegar úrslitin lágu fyrir.

Stórskyttan Kiril Lazarov var eins og oft áður markahæstur í liði Makedóníu með átta mörk en hjá Slóvenum var Jure Dolenec atkvæðamestur með sjö mörk.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, EM handbolta — Fleiri fréttir

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar


finnur.is