Serbar mæta Dönum í úrslitum á EM
Serbar, með frábæran stuðning áhorfenda í höllinni í Belgrad, unnu Króata 26:22 í undanúrslitum á Evrópumótinu sem fram fer í Serbíu. Þetta er besti árangur Serba á Evrópumóti en þeir hafa aldrei áður spilað til úrslita.
Það ætlaði allt um koll að keyra í höllinni bæði fyrir og á meðan á leik stóð. Ekki varð stemningin minni þegar leiknum lauk. Staðan í hálfleik var 13:14 Króötum í vil en í þeim síðari nýttu Serbar sér allan þann meðbyr sem þeir höfðu á áhorfendapöllunum og náðu jafnt og þétt góðu forskoti. Staðan þegar seinni hálfleikur var hálfnaður var 21:17. Það forskot létu Serbar aldrei af hendi.
Markahæstur í liði Serba var Momir Ilic með 8 mörk og næstur honum kom Marko Vujin með sex. Hjá Króatíu var Marko Kopljar atkvæðamestur með 7 mörk.
Serbar mæta Dönum í úrslitaleiknum á sunnudaginn, en Danir unnu Spánverja fyrr í dag sem keppa því við Króata um bronsverðlaunin.






