Spánverjar vilja hefna ófaranna
Spánverjar og Danir leika í undanúrslitum á EM í Belgrad í Serbíu í dag og í hinni viðureigninni mætast grannarnir Króatar og Serbar. Spánverjar hyggjast ná hefndum gegn Dönum en á HM í Svíþjóð í fyrra mættust þjóðirnar í undanúrslitum þar sem Danir fóru með sigur af hólmi.
„Við fáum frábært tækifæri til að rétta okkar hlut á móti Dönum sem við töpuðum fyrir í undanúrslitunum á HM fyrir ári. Það verður hins vegar erfitt því danska liðið hefur öðlast mikið sjálfstraust eftir að hafa unnið þrjá leiki í röð,“ segir Javier Hombrados, markvörður Spánverja, sem aldrei hafa hampað Evrópumeistaratitlinum en besti árangur þeirra er 3. sætið.
Danir hafa einu sinni orðið Evrópumeistarar en það var í Noregi 2008. Þrívegis hafa þeir hins vegar náð bronsverðlaunasæti.






