Tendruðu blys á leik Serba og Króata

Það hefur mikið gengið á í leik grannþjóðanna. stækka

Það hefur mikið gengið á í leik grannþjóðanna. Reuters

Það er allt að verða vitlaust í viðureign Serbíu og Króata í undanúrslitum á Evrópumótinu í handknattleik sem nú stendur yfir. Staðan þegar þetta er skrifað er 16:15 Serbum í vil og fjórar mínútur liðnar af seinni hálfleik.

Gríðarleg öryggisgæsla er í höllinni í Belgrad en vopnaðir lögreglumenn og vígbúnir sérsveitarmenn eru dreifðir um höllina. Til að koma enn frekar í veg fyrir ólæti hefur ekki verið seldur dropi af áfengi í borginni í dag.

Samkvæmt tíðindamanni mbl.is á svæðinu eru ekki miklar líkur á að óeirðir brjótist út á meðan á leiknum stendur en það er svo aldrei að vita hvað gerist eftir leikinn. Þó vopnaleit hafi verið gerð á öllum áhorfendum náðu einhverjir að komast með blys í gegnum öryggisgæsluna sem þeir tendruðu svo fyrir leikinn eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.

Þá heyrðist varla í þjóðsöng Króata fyrir stuðningsmönnum Serba sem bauluðu stanslaust á meðan hann var leikinn.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, EM handbolta — Fleiri fréttir

Laugardaginn 24. mars

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar


finnur.is