EM: Sesum fékk pílu í augað

Zarko Sesum fagnar marki með Serbum. stækka

Zarko Sesum fagnar marki með Serbum. Reuters

Serbneski handknattleiksmaðurinn, Zarko Sesum, gæti misst sjón á öðru auga, eða sjón hans skaðast verulega, eftir að hann fékk kastpílu í augað í gærkvöldi þegar hann gekk af leikvelli eftir sigur Serba á Króötum í undanúrslitum Evrópumótsins í handknattleik karla í Beogradska-íþróttahöllinni í Belgrad.

Vefur Jótlandspóstsins greinir frá þessu í morgun og vitnaði til fréttaveitunnar AFP. Talið er að stuðningsmaður serbneska landsliðsins hafi kastað pílunni og hún hafi verið ætluð Króatanum Ivano Balic sem gekk rétt hjá Sesum þegar þeir yfirgáfu leikvöllinn í leikslok.

Talsmaður króatíska handknattleikssambandsins segir við AFP að Sesum hafi verið ekið á sjúkrahús þar sem hann hafi dvalið í nótt. Sagðist talsmaðurinn að óttast væri að Sesum tapaði sjón á auganu sem varð fyrir pílunni.  Serbneskir fjölmiðar eru öllu hófstilltari í umfjöllun um atvikið og segja eingöngu að Sesum hafi verið fluttur á sjúkrahús og muni gangast undir rannsóknir nú í morgunsárið. 

Rólegt mun hafa verið eftir leik Serba og Króata í gær. Ekki kom til neinna átaka enda var öryggisvarsla í og við keppnishöllina mikil.  Ekki voru nema á að giska tvö til þrjú hundruð Króatar á meðal áhorfenda og voru þeir látnir fylgjast með leiknum úr sérstöku hólfi á efri svölum sem var velt gætt. Þegar blaðamaður mbl.is og Morgunblaðsins yfirgaf keppnishöllina hálfum öðrum tíma eftir að leiknum lauk í gærkvöldi voru stuðningsmenn Króata að búa sig til brottfarar í rútum. Þær voru umkringdar hundruðum vopnaðra sérsveitarmanna í skotheldum vestum sem áttu að sjá til þess að ekki yrði á þær ráðist meðan Króatar gengu frá höllinni og um borð. Væntanlega hafa rúturnar síðan fengið lögreglufylgd fyrsta spölinn út úr Belgrad.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, EM handbolta — Fleiri fréttir

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar


finnur.is