EM: Smámynt eða plastflaska

Serbar fagna sigrinum í gær. stækka

Serbar fagna sigrinum í gær. Reuters

Þýski handknattleiksvefurinn handball-world greinir frá því að plastflösku hafi verið kastað í auga serbneska handknattleiksmannsins Zarko Sesum, ekki kastpílu eftir leik Serba og Króata. Krótinn Ivano Balic segir hinsvegar í samtali við spn.dk að Sesum hafi fengið smámynt í augað. Balic telur að myntin hafi átt að hæfa sig.

Handball-world heldur því ennfremur fram að flaskan hafi átt að hæfa Slavko Goluza, landsliðsþjálfara Króata, en ekki hafi betur tekist til en þetta.

Hvað sem þessu líður þá er staðfest að Sesum var að minnsta kosti undir eftirliti lækna á sjúkrahúsi í nótt. Haft er eftir Veselin Vukovic, landsliðsþjálfara Serba, að hann geti ekki annað en vonað að Sesum geti æft með landsliðinu í dag og tekið þátt í úrslitaleiknum við Dani á morgun.

Fregnir eru því ekki alveg skýrar af atvikinu en AFP-fréttastofan greindi frá því eldsnemma að kastpílu hafi verið kastað fyrir slysni í Sesum með þeim afleiðingum að hún hafi komið í auga hans. Pílan hafi átt að hæfa Ivano Balic, leikmann Króata. Heimildir AFP voru úr herbúðum Króata.

Eftir því sem næst verður komst tekur Handknattleikssamband Evrópu málið til skoðunar og mun vera að vænta yfirlýsingar frá sambandinu þegar líður á daginn. Þá mun vonandi fást úr því skorið hvað gerðist og þá hvaða áhrif þetta hefur á heilsu Sesums.

Gríðarleg öryggisgæsla var á leiknum í gær og þurftu allir áhorfendur að ganga í gegnum vopnaeftirlit, líkt því sem er á flugvöllum víða um heim. Í ljósi þess þykir með ólíkindum hafi einhverjum tekist að komast með kastpílu inn í keppnishöllina í gegnum nálarauga eftirlitsins. Dæmi eru um að smápeningar hafi verið gerðir upptækir hjá áhorfendum til að koma í veg fyrir að þeim væri kastað inn á leikvöllinn eins og gerðist t.d. í leik Makedóníumanna og Þjóðverja fyrr í keppninni. Þá var áfengissölubann í íþróttahöllinni.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, EM handbolta — Fleiri fréttir

Laugardaginn 24. mars


finnur.is