Spánverjar tapa einungis fyrir Dönum

Thomas Mogensen fagnar sigri Dana á Spánverjum í gærkvöld. stækka

Thomas Mogensen fagnar sigri Dana á Spánverjum í gærkvöld. Reuters

Spánverjar urðu að sætta sig við tap gegn Dönum í undanúrslitum Evrópumeistaramótsins í handknattleik karla í Belgrad í gærkvöldi og leika um 3. sætið á mótinu. Er um endurtekið efni að ræða frá því á heimsmeistaramótinu í Svíþjóð í fyrra en þá töpuðu Spánverjar einnig fyrir Dönum í undanúrslitum.

Spánverjar hafa leikið glimrandi vel í þessum tveimur stórmótum eins og tölfræðin sýnir glögglega ef við rýnum í hana. Engu að síður hefur þeim ekki tekist að komast í úrslitaleikina heldur hafa þeir þurft að gera sér að góðu að leika um bronsverðlaunin

Á HM í Svíþjóð í fyrra voru Spánverjar taplausir þegar kom að undanúrslitaleiknum. Þeir gerðu jafntefli við Frakka í riðlakeppninni en Frakkar urðu heimsmeistarar. Spánverjar unnu hins vegar hina sjö leiki sína í riðlakeppninni og í milliriðlinum þar sem við Íslendingar töpuðum fyrir þeim Jönköping. Spánverjar unnu síðan heimamenn Svía í leiknum um bronsverðlaunin.

Á EM í Serbíu voru Spánverjar einnig á sigurbraut þar til í gærkvöldi. Þeir unnu fimm af sex leikjum sínum í riðlakeppninni og í milliriðlinum en gerðu jafntefli við Ungverja í riðlakeppninni. Þegar upp er staðið hafa Spánverjar því einungis tapað tveimur leikjum af sautján í síðuustu tveimur stórmótum. kris@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, EM handbolta — Fleiri fréttir

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar


finnur.is