Danir bestir í heimi og með besta leikmann heims

Serbar á verðlaunapalli í dag. stækka

Serbar á verðlaunapalli í dag. Reuters

Danir eru með besta handboltalið í heimi og Mikkel Hansen er besti leikmaður heims í dag. Þetta sagði Veselin Vukovic, þjálfari Serba, eftir ósigur sinna manna gegn Dönum í úrslitaleik Evrópumótsins í handknattleik í Serbíu í dag.

„Ég get ekki annað en hrósað Dönum. Við töpuðum fyrir besta liði heims sem hefur besta handboltamann í heimi í sínum röðum sem er Mikkel Hansen,“ sagði Vukovic, sem gerði það gott með landsliði gömlu Júgóslavíu á árum áður.

„Við gáfum allt í leikinn á móti Dönum en leikurinn á móti Króötunum tók greinilega sinn toll. Við vorum þreyttir og hálfkraftlausir,“ sagði Vukovic.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, EM handbolta — Fleiri fréttir

Laugardaginn 24. mars


finnur.is