Danir standa betur að vígi í hálfleik
Danir eru tveimur mörkum yfir í hálfleik, 9:7, gegn Serbum í úrslitaleiknum á Evrópumótinu í handknattleik karla sem fram fer á heimavelli síðarnefnda liðsins. Serbarnir eru vel studdir af áhorfendum í höllinni í Belgrad. Danir skoruðu fyrstu tvö mörk hálfleiksins og hafa haldið því forskoti lengst af.
Danir náðu mest þriggja marka forskoti í fyrri hálfleiknum, 8:5, en staðan þegar hálfleikurinn var hálfnaður var 5:3. Eins og tölurnar gefa til kynna hafa varnir liðanna verið mjög góðar og ekki síður markverðirnir. Niklas Landin hjá Dönum er búinn að verja 11 skot og Darko Stanic hjá Serbíu er með einu minna eða 10.
Markahæstir hjá Dönum í fyrri hálfleik eru Mikkel Hansen og Anders Eggert Jensen, báðir með þrjú. Hjá Serbum eru Rajko Prodanovic og Nenad Vuckovic með tvö mörk. Momir Ilic er aðeins með eitt mark úr sex skotum en markið skoraði hann úr vítakasti.






