EM: Sigurliðið fær 6,6 miljónir

Hans Lindberg hornamaðurinn knái í liði Dana. stækka

Hans Lindberg hornamaðurinn knái í liði Dana. Reuters

mbl.is Ívar Benediktsson í Belgrad, iben @mbl.is

Sú þjóð sem verður Evrópumeistari í handknattleik í dag fær jafnvirði 6,6 milljóna króna í verðlaunafé frá Handknattleikssambandi Evrópu, EHF. Silfurliðið fær í sinn hlut um rétt tæpar fimm milljónir.

Danir eru strax farnir að velta því fyrir sér að þeir muni tapa fjárhagslega á því að vinna úrslitaleikinn í dag. Vinni þeir leikinn komast þeir beint í handknattleikskeppni Ólympíuleikanna og ekkert verður úr að þeir verði gestgjafar eins riðils í forkeppninni. Áætlað er að hún fari fram í íþróttahöllinni í Herning sem rúmar 11 þúsund áhorfendur í sæti. Ef uppselt verður alla leikdagana þrjá þá myndi það gefa danska handknattleikssambandinu miklu meiri tekjur en sigurinn á Evrópumeistaramótinu.

„Að sjálfsögðu stefnum við á sigur í dag hvað sem öllu líður. Það væri frábært að komast beint á Ólympíuleikana. Velgengni inni á leikvellinum skiptir okkur meira máli en peningar,“ segir Morten Stig Christensen, framkvæmdastjóri danska handknattleikssambandsins, í samtali við Jyllands Posten.

Reiknað er með að stór hluti verðlauna Dana renni til leikmanna, hvort sem þeir verða meistarar eða í öðru sæti. Leikmenn landsliðsins hafa mjög góða samninga við sambandið sem gerir m.a. ráð fyrir greiðslum fyrir verðlaunasæti á stórmótum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, EM handbolta — Fleiri fréttir

Laugardaginn 24. mars


finnur.is