EM: Um 550 Danir á úrslitaleiknum í dag

Lars Christiansen hornamaðurinn knái í liði Dana. stækka

Lars Christiansen hornamaðurinn knái í liði Dana. Reuters

Reiknað er með að um 550 Danir verði á meðal áhorfenda á úrslitaleik Evrópumótsins í handknattleik í Bogradska Arena í Belgrad síðar í dag. Alls voru um 400 Danir á undanúrslitaleiknum við Spán á föstudag og í dag kom flugvél með 150 til viðbótar og eru þeir að koma til hallarinnar þessa stundina.

Danska handknattleikssambandinu tókst að öngla saman 150 aðgöngumiðum til viðbótar fyrir stuðningsmenn danska landsliðsins þegar ljóst var að það komst í úrslitaleikinn.

Alls mun vera von á að minnsta kosti 15 þúsund Serbum á leikinn og ljóst að Danirnir mega hafa sig alla við ætli þeir að láta rödd sína heyrast á úrslitaleiknum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, EM handbolta — Fleiri fréttir

Laugardaginn 24. mars


finnur.is