Íþróttir
|
EM handbolta
| mbl
| 29.1.2012
| 17:30
Ísland mætir Króatíu, Japan og Síle
Eftir að Danir unnu Serba í úrslitum á Evrópumótinu í handknattleik karla er ljóst að íslenska landsliðið mætir Króatíu, Japan og Síle í undankeppninni fyrir Ólympíuleikana í London í sumar. Riðilinn verður leikinn í Króatíu en tvö lið fara áfram og því líklegt að það verði Króatar og Íslendingar.
Ef Serbía hefði orðið Evrópumeistari hefði riðilinn verið mun erfiðari. Þá hefði íslenska liðið mætt Spáni, Slóveníu og Brasilíu en Ísland tapaði fyrir Slóveníu í riðlakeppninni á Evrópumótinu.
Leikirnir fara fram 6.-8 apríl, eins og áður segir í Króatíu. Danir tryggðu sætið sitt á leikunum með sigri á Evrópumótinu og Frakkar eru einnig búnir að tryggja sér sæti sem ríkjandi heimsmeistarar.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






