Króatar einu marki yfir í hálfleik

Julen Aguinagalde leikmaður Spánverja reynir að komast framhjá Króatanum Blazenko Lackovic í leik liðanna í ... stækka

Julen Aguinagalde leikmaður Spánverja reynir að komast framhjá Króatanum Blazenko Lackovic í leik liðanna í dag. Reuters

Króatía og Spánverjar eigast nú við í baráttunni um bronsverðlaun á Evrópumótinu í handknattleik karla. Staðan í hálfleik er 13:12 Króötum í vil sem byrjuðu betur og skoruðu fyrstu tvö mörk hálfleiksins. Þá höfðu þeir fimm marka forystu um miðjan hálfleikinn, 9:4, en Spánverjar hafa síðan náð að minnka muninn.

Spánverjar skoruðu þrjú síðustu mörk hálfleiksins og breyttu stöðunni úr 13:9 í 13:12 sem gæti reynst þeim afar dýrmætt í síðari hálfleik.

Blazenko Lackovic var atkvæðamestur Króata í fyrri hálfleik með fimm mörk en hjá Spánverjum eru þrír leikmenn með þrjú mörk.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, EM handbolta — Fleiri fréttir

Laugardaginn 24. mars


finnur.is