Íþróttir
|
EM handbolta
| mbl
| 29.1.2012
| 17:44
| Uppfært
18:11
Mikkel Hansen mikilvægastur - Landin bestur
Mikkel Hansen, leikmaður Dana, var valinn mikilvægasti leikmaður úrslitaleiksins á Evrópumótinu í handknattleik karla þegar liðið vann heimamenn í Serbíu 21:19. Hansen fór hreinlega á kostum og skoraði 9 mörk og var sá sem dönsku leikmennirnir leituðu nær eingöngu til í sókninni.
Hansen brást ekki sínu liði en hann er aðeins 24 ára gamall og spilar með AG Köbenhavn í dönsku úrvalsdeildinni.
Niklas Landin sem varði tæp 20 skot og þar af eitt vítakast var valinn besti maður Dana. Kollegi hans í markinu hjá Serbum Darko Stanic stóð sig einnig mjög vel og var valinn besti maður Serbíu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin








