Serbar geta unnið þrefalt

Frá sundknattleiksmótinu sem fram fer í Hollandi. stækka

Frá sundknattleiksmótinu sem fram fer í Hollandi. Reuters

Serbar eru í þeirri skemmtilegu stöðu að geta unnið þrefalt í dag þegar handknattleikslandslið þeirra spilar gegn Dönum í úrslitum á Evrópumótinu sem fram fer í Serbíu. Liðin mætast klukkan 16 en fyrr í dag vann Serbinn Novak Djokovic opna ástralska mótið í tennis.

Þá vann serbneska sundknattleikslandsliðið, Evrópumótið í greininni nú fyrir skömmu. Mótið fer fram í Hollandi og unnu þeir Svartfjallaland í úrslitum 9:8.

Serbneskt íþróttalíf er því greinilega í miklum blóma um þessar mundir.  

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, EM handbolta — Fleiri fréttir

Laugardaginn 24. mars


finnur.is