Wilbek: Mótið rússíbani hjá okkur
Ulrik Wilbek sýndi það og sannaði að hann er frábær þjálfari en undir hans stjórn urðu Danir Evrópumeistarar í handknattleik karla í annað sinn. Danir lögðu Serba í úrslitaleik í Belgrad í dag en þeir hömpuðu titlinum einnig í Noregi fyrir fjórum árum.
„Þetta Evrópumót var algjör rússíbani fyrir okkur eftir að hafa tapað tveimur af þremur fyrstu leikjunum. Við byrjuðum mótið á því að tapa fyrir Serbunum og ég sagði að ég vonaðist til að mæta þeim aftur.
Úrslitaleikurinn var taktískur en Serbarnir voru greinilega þreyttir og ég held að vörn okkar, markvarslan hjá Landin og frammistaða Mikkels Hansens hafi ráðið úrslitum. En ég óska Serbunum til hamingju. Þeir áttu frábæra keppni og geta verið stoltir af árangri sínum,“ sagði Wilbek eftir sigur sinna manna.






