EM: Hverjir toppuðu og hverjir klikkuðu?

Mikkel Hansen skorar eitt níu marka sinna gegn Serbum í gær. stækka

Mikkel Hansen skorar eitt níu marka sinna gegn Serbum í gær. Reuters

Franska íþróttablaðið L'Equipe hefur kafað ofan í úrslitakeppni Evrópumóts karlalandsliða í handknattleik sem lauk í Serbíu í gær þar sem Danir stóðu uppi sem Evrópumeistarar eftir sigur á Serbum í úrslitaleik.

Að mati blaðsins stóðu danska stórskyttan Mikkel Hansen, serbneski markvörðurinn Darko Stanic og Kiril Lazarov frá Makedóníu upp úr.

Hansen fór á kostum þegar líða fór á mótið og átti frábæran leik í úrslitaleiknum á móti Serbum en hann skoraði 9 mörk. Stanic varði mark Serba með glæsibrag allt mótið og Lazarov hrellti hvern markvörðinn á fætur öðrum en hann endaði sem markakóngur mótsins og sló markamet Ólafs Stefánssonar.

Blaðamenn L'Equipe eru á því að Frakkinn Nikola Karabatic, Króatinn Ivano Balic og Tékkinn Filip Jicha hafi valdið mestu vonbrigðum á mótinu en þessir kappar hafa síðustu árin verið taldir í hópi bestu handboltamanna heims og þeir Karabatic og Jicha eru tilnefndir í vali á handboltamanni ársins fyrir árið 2011.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, EM handbolta — Fleiri fréttir

Laugardaginn 24. mars


finnur.is