Krónprinsinn hyllir dönsku Evrópumeistarana

Danir fagna Evrópumeistaratitlinum í gær. stækka

Danir fagna Evrópumeistaratitlinum í gær. Reuters

Danir ætla að fjölmenna á Ráðhústorgið í Kaupmannahöfn í dag þar sem þeir ætla að hylla leikmenn danska karlalandsliðsins í handknattleik sem í gær varð Evrópumeistari eftir sigur á Serbum í úrslitaleik.

Meðal þeirra sem hafa boðað komu sína er Friðrik krónprins en búist er við fjölmenni taki á móti Evrópumeisturunum. Þotur frá danska hernum munum fylgja flugvélinni sem flytur dönsku leikmennina síðasta spölinn til Kaupmannahafnar.

Nokkrir af dönsku leikmönnunum munu upplifa sömu tilfinningu og fyrir fjórum árum en þá var mikil sigurhátíð á Ráðhústorginu eftir Evrópumeistaratitilinn sem Danir unnu á EM í Noregi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, EM handbolta — Fleiri fréttir

Laugardaginn 24. mars


finnur.is