Lazarov varð markakóngur - Guðjón fjórði

Guðjón Valur Sigurðsson. stækka

Guðjón Valur Sigurðsson. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Makedóníumaðurinn Kirl Lazarov varð markakóngur Evrópumótsins í handbolta sem lauk í Serbíu í gær. Lazarov skoraði 61 mark í keppninni og bætti markamet Ólafs Stefánssonar um þrjú mörk.

Slóveninn Dragan Gojic varð næstmarkahæstur með 48 mörk og Daninn Mikkel Hansen endaði sem þriðji markahæsti maður mótsins með 45 mörk. Guðjón Valur Sigurðsson varð svo í fjórða sæti en hann skoraði 41 mark.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, EM handbolta — Fleiri fréttir

Laugardaginn 24. mars


finnur.is