Forseti AC Milan: Shevchenko vill koma aftur

Andriy Shevchenko fagnar einu af fimm mörkum sínum fyrir Chelsea.
Andriy Shevchenko fagnar einu af fimm mörkum sínum fyrir Chelsea. Reuters

Silvio Berlusconi forseti ítalska knattspyrnuliðsins AC Milan segir í viðtali við ítalska fjölmiðla í dag að Úkraínumaðurinn Andriy Shevchenko vilji koma aftur til félagsins en hann var seldur til Chelsea í sumar fyrir 3,5 milljarða króna. Shevchenko hefur ekki gengið sem best í búningi Englandsmeistaranna. Honum tókst þó að skora gegn Watford í gær og hefur skorað 5 mörk fyrir félagið í 15 leikjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert