Arsene Wenger: Frábær frammistaða

Emmanuel Adebayor fagnar öðru marki sínu á Reebok í kvöld.
Emmanuel Adebayor fagnar öðru marki sínu á Reebok í kvöld. Reuters

Arsene Wenger knattspyrnustjóri var afar ánægður með framlag sinna manna í leiknum gegn Bolton í kvöld en Arsenal tryggði sér sæti í 16-liða úrslitum bikarkeppninnar með 3:1 sigri á Bolton í framlengdum leik á Reebok vellinum í Bolton.

,,Þetta var frábær bikarleikur og frammistaða minna manna var hreint frábær. Þetta var svekkjandi að þurfa að fara út í framlengingu en sem betur höfðu mínir nægilega styrk til að gera út um leikinn," sagði Wenger en hans menn taka á móti Blackburn í 5. umferð keppninnar á laugardaginn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert