Lampard ekki með vegna úlnliðsbrots

Frank Lampard æfði í gær þrátt fyrir meiðslin en nú …
Frank Lampard æfði í gær þrátt fyrir meiðslin en nú hefur hann verið úrskurðaður óleikfær. Reuters

Frank Lampard leikur ekki með enska landsliðinu í knattspyrnu gegn Andorra í Barcelona í kvöld. Í ljós hefur komið að hann er með brotið bein í úlnlið hægri handar en hann varð fyrir þrumuskoti frá Wayne Rooney á æfingu á mánudaginn. Útlit var fyrir að meiðslin væru ekki alvarleg og Lampard gæti spilað en nú er ljóst að hann er úr leik.

Þar með þykir fullvíst að Steven Gerrard og Owen Hargreaves leiki saman inni á miðjunni í kvöld en Aaron Lennon verði hægra megin og Stewart Downing kom inn sem miðjumaður vinstra megin.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert