Liverpool áfram og mætir Chelsea

Peter Crouch markaskorari Liverpool í baráttu við Carlos Salcido á …
Peter Crouch markaskorari Liverpool í baráttu við Carlos Salcido á Anfield í kvöld. Reuters

Liverpool sigraði PSV Eindhoven, 1:0, og tryggði sér endanlega farseðilinn í undanúrslit Meistaradeildarinnar en fyrir leikinn í kvöld þótti nokkuð öruggt að Liverpool færi í undanúrslitin þar sem það hafði betur í fyrri leiknum í Eindhvoven, 3:0. Peter Crouch skoraði sigurmarkið á 68. mínútu en skömmu áður var leikmanni PSV vikið af velli.

Liverpool, sem hampaði Evrópumeistaratitlinum fyrir tveimur árum, mætir Englandsmeisturum Chelsea í undanúrslitunum, en Liverpool sló Chelsea út í undanúrslitunum 2005.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert