Newcastle og Chelsea gerðu 0:0 jafntefli

Obafemi Martins hjá Newcastle og Claude Makelele hjá Chelsea í …
Obafemi Martins hjá Newcastle og Claude Makelele hjá Chelsea í baráttu í leiknum í dag. Reuters

Chelsea náði ekki að knýja fram sigur á Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag og liðin skildu jöfn á St. James' Park, heimavelli Newcastle. Þar með er Manchester United áfram með þriggja stiga forskot á Chelsea, eins og fyrir umferðina, en Chelsea hefði með sigri í dag náð að minnka það í eitt stig. United er með 82 stig og Newcastle 79 stig þegar bæði lið eiga fjórum leikjum ólokið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert