Ferguson: Gáfumst aldrei upp

Cristiano Ronaldo hefur betur gegn Kaká á Old Trafford í …
Cristiano Ronaldo hefur betur gegn Kaká á Old Trafford í kvöld. Reuetrs

Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri Manchester United hrósaði sínum mönnum eftir sigurinn á AC Milan, 3:2, í Meistaradeildinni í kvöld. United var 1:2 undir í hálfleik en Wayne Rooney sá um að tryggja Manchester-liðinu sigurinn með tveimur mörkum.

,,Við gáfumst aldrei upp og héldum áfram að spila okkar leik. Við réðum algjörlega ferðinni í seinni hálfleik og jöfnunarmarkið var okkur mikil hvatning að ná að knýja fram sigur. Það tókst og gefur okkur góða möguleika á að komast áfram," sagði Ferguson.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert