Sammy Lee er betri en Sam Allardyce

Sammy Lee fær að stýra liði Bolton eins lengi og …
Sammy Lee fær að stýra liði Bolton eins lengi og hann vill. AP

Phil Gartside stjórnarformaður Bolton segir að Sammy Lee sé betur til þess fallinn að taka skrefið fram á við með félagið heldur en Sam Allardyce en Lee var í morgun ráðinn knattspyrnustjóri Bolton í stað Allardyce. Samningur hans ekki bundinn við neinn tíma heldur getur verið við stjórnvölinn eins lengi og hann vill sagði Gartside við fréttamenn.

,,Þú tekur lykilmann út úr liðinu og leysir hann af hólmi með manni sem er betri. Þannig sé ég þetta fyrir mér með ráðningu á Lee. Ég hef þekkt hann lengi og hann er afar fær þjálfari sem hefur frábær sambönd. Sammy getur verið hjá okkur eins lengi og hann vill," sagði Gartside.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert