Mourinho leggur traust sitt á Drogba

Markið í uppsiglingu á Stamford Bridge þar sem Didier Drogba náði að spóla sig framhjá ...

Markið í uppsiglingu á Stamford Bridge þar sem Didier Drogba náði að spóla sig framhjá Daniel Agger og leggja upp mark fyrir Joe Cole. Reuters

Jose Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea segir að Didier Drogba geti orðið sá leikmaður sem skipti sköpum i kvöld þegar Chelsea og Liverpool mætast í síðari undanúrslitaleik liðanna í Meistaradeildinni á Anfield í kvöld.

Drogba hefur skorað 31 mark á leiktíðinni og var maðurinn á bakvið markið sem Joe Cole skoraði í fyrri leiknum á Stamford Bridge sem réði úrslitum.

,,Didier er í virkilega góðu formi og þó svo að Liverpool hafi á að skipa sterkum varnarmönnum þá er Didier svo kraftmikill að hann mun örugglega valda þeim vandræðum líkt og í fyrri leiknum og í leiknum á Anfield í deildinni í fyrra. Svo ég hef trú á að hann verði mikilvægi leikmaðurinn fyrir okkur aftur," segir Mourinho.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is