Portsmouth sagt vilja fá Hermann

Hermann Hreiðarsson.
Hermann Hreiðarsson. Reuters

Fullyrt er á fréttavef stuðningsmanna enska knattspyrnuliðsins Charlton, að Harry Redknapp, knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins Portsmouth, vilji fá Hermann Hreiðarsson, leikmann Charlton og íslenska landsliðsins, í sínar raðir.

Charlton féll úr ensku úrvalsdeildinni í vor og er Hermann með ákvæði í samningi sínum sem gerir honum kleift að fara frá félaginu kjósi hann það nú.

Fram kemur á vefnum addickted.net að Redknapp hafi alltaf haft mikið álit á Hermanni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert