Redknapp: Alltaf verið hrifinn af Hermanni

Hermann í baráttu við Kanu á Fratton Park á nýafstaðinni …
Hermann í baráttu við Kanu á Fratton Park á nýafstaðinni leiktíð en Kanu er nú orðinn samherji Hermanns og Fratton Park hans nýi heimavöllur. Reuters

Harry Redknapp knattspyrnustjóri Portsmouth er afar ánægður með að hafa fengið Hermann Hreiðarsson til liðs við sig en Hermann skrifaði í gærkvöld undir tveggja ára samning við félagið eins og fram kom í Morgunblaðinu í dag.

,,Ég hef alltaf verið hrifinn af Hermanni. Ég reyndi að fá til liðs við félagið fyrir nokkrum árum og ég er afar ánægður að hann samþykkti að koma til Portsmouth núna. Hann hefur miklu reynslu í úrvalsdeildinni. Hann er stór, fljótur, góður skallamaður og mikill keppnismaður. Hann getur leikið sem bakvörður og miðvörður svo hann gefur okkur marga möguleika," sagði Redknapp við fjölmiðla í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert