Henry stóðst læknisskoðun hjá Barcelona

Henry í læknisskoðuninni í höfuðstövðum Barcelona.
Henry í læknisskoðuninni í höfuðstövðum Barcelona. Reuters

Thierry Henry stóðst læknisskoðun hjá spænska liðinu Barcelona og síðar í dag verður hann kynntur til sögunnar sem nýr liðsmaður Barcelona. Henry skrifar undir fjögurra ára samning við Börsunga sem greiðir Arsenal 2 milljarða króna fyrir franska framherjann.

„Ég hlakka mikið til að spila með Barcelona og ekki síst á Camp Nou. Ég lít á það sem mikinn heiður að spila fyrir Barcelona og öllum þeim frábæru fótboltamönnum sem hér eru," sagði Henry við vef Barcelona.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert