Bianchi skoraði í sínum fyrsta leik fyrir City

Rolando Bianchi skoraði í sínum fyrsta leik fyrir Manchester City.
Rolando Bianchi skoraði í sínum fyrsta leik fyrir Manchester City. AP

Manchester City sigraði sænska liðið Örgryte, 4:1, í æfingaleik í Svíþjóð í kvöld. Ítalinn Rolando Bianchi skoraði fyrsta markið í sínum fyrsta leik fyrir City og þeir Bernardo Corradi, Georgios Samaras og Shaleum Logan gerðu hin mörkin fyrir Manchester-liðið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert