Beckham ekki með LA Galaxy á morgun

Beckham fylgist með leik sinna manna af hliðarlínunni.
Beckham fylgist með leik sinna manna af hliðarlínunni. AP

David Beckham hefur enn ekki fengið sig góðan af ökklameiðslum og verður ekki með liði sínu, LA Galaxy, á morgun þegar það mætir FC Dallas. Beckham hefur hvorki æft né leikið með liðinu frá því hann spilaði sinn fyrsta leik gegn Chelsea fyrr í mánuðinum en þá lék hann síðustu 13 mínútur leiksins.

,,Það er orðið ljóst að hann spilar ekki gegn Dallas og það verður bara að koma í ljós síðar í vikunni hvort hann geti verið með okkur gegn Toronto á sunnudaginn," sagði talsmaður LA Galaxy við fréttavef BBC.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert