Man. Utd. náði aðeins stigi gegn Portsmouth, Heiðar skoraði fyrir Bolton
Paul Scholes fagnar eftir að hafa skorað fyrir Manchester United gegn Portsmouth. Reuters
Portsmouth - Manchester United 1:1. Benjani 52. - Paul Scholes 15.
Manchester City - Derby 1:0. Michael Johnson 43.
Birmingham - Sunderland 2:2. Paul McShane (sjálfsm.) 28., Garry O'Connor 82. - Michael Chopra 75., Stern John 90.
Fulham - Bolton 2:1. David Healy 23., Alexei Smertin 26. - Heiðar Helguson 12.
Reading - Chelsea 1:2. André Bikey 23. - Frank Lampard 47., Didier Drogba 50.
Wigan - Middlesbrough 1:0. Antoine Sibierski 55.
Everton, Man. City og Chelsea eru öll með 6 stig að loknum tveimur leikjum. Sunderland er í fjórða sæti með 4 stig.
| Staðan | |||||||
| L | U | J | T | Mörk | Stig | ||
| 1. | Everton | 2 | 2 | 0 | 0 | 5:2 | 6 |
| 2. | Man. City | 2 | 2 | 0 | 0 | 3:0 | 6 |
| 3. | Chelsea | 2 | 2 | 0 | 0 | 5:3 | 6 |
| 4. | Sunderland | 2 | 1 | 1 | 0 | 3:2 | 4 |
| 5. | Newcastle | 1 | 1 | 0 | 0 | 3:1 | 3 |
| 6. | Arsenal | 1 | 1 | 0 | 0 | 2:1 | 3 |
| 7. | Blackburn | 1 | 1 | 0 | 0 | 2:1 | 3 |
| 8. | Liverpool | 1 | 1 | 0 | 0 | 2:1 | 3 |
| 9. | Fulham | 2 | 1 | 0 | 1 | 3:3 | 3 |
| 10. | Wigan | 2 | 1 | 0 | 1 | 2:2 | 3 |
| 11. | Portsmouth | 2 | 0 | 2 | 0 | 3:3 | 2 |
| 12. | Man. Utd | 2 | 0 | 2 | 0 | 1:1 | 2 |
| 13. | Birmingham | 2 | 0 | 1 | 1 | 4:5 | 1 |
| 14. | Derby | 2 | 0 | 1 | 1 | 2:3 | 1 |
| 15. | Reading | 2 | 0 | 1 | 1 | 1:2 | 1 |
| 16. | Aston Villa | 1 | 0 | 0 | 1 | 1:2 | 0 |
| 17. | Middlesbro | 2 | 0 | 0 | 2 | 1:3 | 0 |
| 18. | West Ham | 1 | 0 | 0 | 1 | 0:2 | 0 |
| 19. | Bolton | 2 | 0 | 0 | 2 | 2:5 | 0 |
| 20. | Tottenham | 2 | 0 | 0 | 2 | 1:4 | 0 |
20:55: Chelsea hafði betur gegn Reading á útivelli, 2:1.
20:42: Stern John jafnar fyrir Sunderland á útivelli gegn Birmingham, 2:2.
20:37: Garry O'Connor skorar fyrir Birmingham gegn Sunderland og kemur liðinu í 2:1.
20:35: Brynjar Björn Gunnarsson kemur inná á 72. mínútu í liði Reading gegn Chelsea.
20:34: Heiðar Helguson fór af velli í lið Bolton á 71. mínútu en hann skoraði fyrsta mark leiksins gegn sínu gamla liði, Fulham.
20:33: Kalifa Cisse leikmaður Reading fær sitt annað gula spjald gegn Chelsea en Reading er 2:1-undir á heimavelli.
20:29: Cristiana Ronaldo leikmaður Man. Utd. fær rautt spjald gegn Portsmouth og er því jafnt báðum liðum. Það er heldur farið að hitna í kolunum en Ronaldo virtist hafa skallað einn leikmann Portsmouth.
20:27: Sully Montari leikmaður Portsmouth fær annað gula spjaldið sitt í leiknum gegn Ma. Utd. Hermann Hreiðarsson og félagar hans í Portsmouth eru þvi einum færri þegar um 10 mínútur eru eftir af leiknum.
20.23: Michael Chopra skorar fyrir Sunderland gegn Birmingham á útivelli. Þetta er annað markið hjá Chopra á leiktíðinni en hann skoraði sigurmarkið fyrir nýliðina gegn Tottenham um síðustu helgi.
20.20: Didier Drogba vill fá dæmda vítaspyrnu á Ívar Ingimarsson eftir að boltinn fer í hendina á íslenska landsliðsvarnarmanninum í vítateig Reading.
20.18 Antoine Sibierski kemur Wigan yfir á 55. mínútu gegn Middlesbrough. Valencia átti gott skot að marki frá vítateig en Sibierski náði frákastinu eftir að markvörðurinn missti boltann frá sér.
20.13: Didier Drogba skorar fyrir Chelsea og kemur liðinu í 2:1 gegn Reading á útivelli. Chelsea skoraði með tveggja mínútna millibili. Ívar Ingimarsson fékk gult spjald á 52. mínútu fyrir brot gegn Drogba.
20.08: Frank Lampard jafnar fyrir Chelsea gegn Reading í upphafi síðari hálfleiks, staðan er 1:1.
19.58: Benjani skorar fyrir Portsmouth og jafnar gegn Manchester United, 1:1.
19.49: Hálfleikur í tveimur síðari leikjunum: Reading - Chelsea 1:0 og Wigan - Middlesbrough 0:0.
19.39: Það er mikil harka á Madejski leikvanginum í Reading því 7 gul spjöld eru komin á loft eftir aðeins 40 mínútur, þrjú á Reading og fjögur á Chelsea!
19.37: Hálfleikur í fjórum leikjum: Portsmouth - Man.Utd 0:1, Man.City - Derby 1:0, Birmingham - Sunderland 1:0 og Fulham - Bolton 2:1. Heiðar Helguson með mark Bolton.
19.32: 1:0 Manchester City er komið yfir gegn Derby með marki frá Michael Johnson á 43. mínútu.
19.29: 1:0 Reading er komið yfir gegn Chelsea. Ívar Ingimarsson skallaði að marki, Petr Cech mistókst að slá boltann í burtu og varamaðurinn Andre Bikey skoraði með sinni fyrstu snertingu, nýkominn inná, á 29. mínútu.
19.22: 1:0 Birmingham er komið yfir gegn Sunderland í nýliðaslagnum á St. Andrews. Stephen Kelly skallaði að marki og boltinn hrökk af Paul McShane í netið, á 28. mínútu.
19.19: Tveir leikmanna Reading, þeir Shane Long og Kalife Cisse, hafa þegar fengið gula spjaldið gegn Chelsea, eftir aðeins stundarfjórðungs leik.
19.17: 2:1 Fulham er komið yfir gegn Bolton en Alexei Smertin, rússneski miðjumaðurinn, skoraði á 26. mínútu á Craven Cottage með skoti af löngu færi þar sem boltinn breytti stefnu af varnarmanni.
19.12: 1:1 David Healy jafnar metin fyrir Fulham gegn Bolton á 23. mínútu, með sínu öðru marki í jafnmörgum leikjum, af stuttu færi eftir hornspyrnu.
19.03: 0:1 Það er enginn annar en Heiðar Helguson sem hefur komið Bolton yfir gegn sínu gamla félagi, Fulham, með marki á 12. mínútu. Hann nýtti sér mikil mistök hjá Tony Warner markverði Fulham, sem missti boltann frá sér þegar hann ætlaði að kasta frá marki, og Heiðar skoraði auðveldlega.
19.02: 0:1 Manchester United er komið yfir í Portsmouth. Paul Scholes skoraði á 15. mínútu hjá Hermanni og félögum. Glæsilegt skot, eftir sendingu frá sjálfum Carlos Tévez.
Steve Coppell teflir fram sókndjarfara liði hjá Reading gegn Chelsea en gegn Manchester United á Old Trafford og gerir fimm breytingar á byrjunarliðinu þrátt fyrir frábær úrslit í þeim leik. Hann fer í 4-4-2 í staðinn fyrir 4-5-1 og við það dettur m.a. Brynjar Björn út úr byrjunarliðinu.
Lið Chelsea gegn Reading: Cech, Ferreira, Haim, Carvalho, A.Cole - Lampard, Sidwell, Malouda - Wright-Phillips, Drogba, Kalou.
Varamenn: Cudicini, Johnson, J.Cole, Mikel, Pizarro.
Carlos Tévez leikur sinn fyrsta leik með Manchester United og kemur í stað Waynes Rooneys sem er meiddur. Lið Man.Utd er þannig skipað: Van der Sar - Brown, Ferdinand, Vidic, Evra - Ronaldo, Carrick, Scholes, Nani, Giggs - Tévez.
Varamenn: Kuszczak, O'Shea, Pique, Eagles og Fletcher.
Ívar Ingimarsson er í byrjunarliði Reading en Brynjar Björn Gunnarsson er á varamannabekknum.
Heiðar Helguson er í byrjunarliði Bolton gegn sínu gamla félagi, Fulham, sem hann hefur leikið með undanfarin tvö ár. Þetta er fyrsti leikur Heiðars í byrjunarliði Bolton.
Hermann Hreiðarsson er í byrjunarliði Portsmouth sem tekur á móti Manchester United.






