Frank Lampard meiddist á æfingu

Frank Lampard verður ekki með Chelsea um helgina.
Frank Lampard verður ekki með Chelsea um helgina. Reuters

Frank Lampard, miðjumaður Chelsea og enska landsliðsins í knattspyrnu, meiddist á æfingu hjá félagi sínu í dag og óvíst er hvort hann geti leikið með Englendingum gegn Ísrael og Rússlandi í undankeppni EM 8. og 12. september. Ljóst er að hann verður ekki með Chelsea gegn Aston Villa í úrvalsdeildinni á sunnudaginn en hann reif vöðva í læri.

Fyrir Steve McClaren landsliðsþjálfara Englands eru þetta vondar fréttir en hann hefur þegar misst þá David Beckham og Wayne Rooney útúr liði sínu og tvísýnt er með Steven Gerrard.

Í yfirlýsingu á vef Chelsea eru meiðsli Lampards staðfest, en sagt að það sé of snemmt að segja til um hve lengi hann verði frá keppni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert