Riise og Sissoko ekki með Liverpool gegn Porto

John Arne Riise er meiddur í nára og leikur ekki …
John Arne Riise er meiddur í nára og leikur ekki með Liverpool gegn Porto annað kvöld. Reuters

John Arne Riise og Mohamed Sissoko verða ekki með Liverpool þegar liðið mætir Porto á útivelli í fyrstu umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar annað kvöld. Báðir eiga þeir við meiðsli að stríða og fóru ekki með liðinu sem hélt til Portúgals í morgun.

Fabio Aurelio er hins vegar í leikmannahópnum hjá Liverpool í fyrsta sinn síðan í apríl en Brasilíumaðurinn meiddist illa í hásin í leik á móti PSV í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar á síðustu leiktíð. Hann lék sinn fyrsta leik frá því hann meiddist í síðustu viku með varaliðinu gegn Crewe og Rafael Benítez, knattspyrnustjóri Liverpool, valdi hann í hópinn sem heldur utan til Portúgals fyrir hádegi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert