Mourinho mætti á æfingasvæði Chelsea

Óvinir. Jose Mourinho fyrrum knattspyrnustjóri Chelsea og eigandi félagsins, Roman …
Óvinir. Jose Mourinho fyrrum knattspyrnustjóri Chelsea og eigandi félagsins, Roman Abramovich. Reuters

Jose Mourinho fyrrum knattspyrnustjóri Chelsea kom við á æfingasvæði Chelsea í Cobham í morgun og kvaddi þar fyrrum lærisveina sína. Mikill skari fréttamanna og ljósmyndara voru mættir á svæðið en Mourinho staldraði stutt við og neitaði að veita viðtöl og skýra út ástæðuna fyrir því að hann hætti hjá félaginu.

Eins og fram hefur komið er Ísraelinn Avram Grant tekinn við starfi Mourinho og hans aðstoðarmaður verður Steve Clark. Ekki kemur fram í fréttatilkynningu Chelsea um hvort um sé að ræða tímabunda ráðningu sé að ræða en víst er að Grant mun velja liðið sem etur kappi við Englandsmeistara Manchester United á sunnudaginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert