Steven Gerrard: Ekki búinn að gefast upp

Steven Gerrard fyrirliði Liverpool.
Steven Gerrard fyrirliði Liverpool. Reuters

Steven Gerrard fyrirliði Liverpool sagði eftir ósigurinn gegn Besiktas í Meistaradeildinni í kvöld að hann sé ekki búinn að gefast upp þrátt fyrir að liðið sé í erfiðri stöðu. Liverpool varð að sætta sig við 2:1 tap og er í neðsta sæti í A-riðlinum.

,,Ég er ekki búinn að gefast upp. Við erum alveg færir um að vinna þá leiki sem við eigum eftir og komast þar með áfram í keppninni. Við vorum ánægðir með spilamennsku okkar en mjög vonsviknir með úrslitin. Við fengum mörk góð tækifæri en heppnin var ekki með okkur að þessu sinni," sagði Gerrard en þetta var annar ósigur liðsins í röð í Meistaradeildinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert