Saha aftur í baráttuna með United

Louis Saha er búinn að ná sér af meiðslum.
Louis Saha er búinn að ná sér af meiðslum. Reuters

Franski sóknarmaðurinn Louis Saha í liði Englandsmeistara Manchester United hefur hrist af sér meiðslin í hné sem hafa verið að plaga hann undanfarnar vikur og vonast Sir Alex Ferguson að geta valið hann í leikmannahóp sinn fyrir leikinn gegn Arsenal á laugardaginn.

Saha hefur verið frá keppni síðustu fjórar vikurnar en hann hóf æfingar að nýju með liðinu í vikunni og að sögn Ferguson lítur út fyrir að hann sé búinn að ná sér að fullu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert