Jol á leið til PSV Eindhoven

Martin Jol fyrrum knattspyrnustjóri Tottenham.
Martin Jol fyrrum knattspyrnustjóri Tottenham. Reuters

Forráðamenn hollenska liðsins PSV Eindhoven staðfestu í dag að Martin Jol fyrrum knattspyrnustjóri Tottenham sé líklegur til að taka við þjálfun liðsins af Ronald Koeman.

Koeman hefur ákveðið söðla um að taka við spænska liðinu Velencia og leituðu forráðamenn til Martin Jols sem sagt var upp störfum hjá Tottenham í síðustu viku.

,,Við viljum fá hollenskan þjálfara sem hefur alþjóðlega reynslu og það er á hreinu að Martin Jol kemur til greina," sagði talsmaður PSV við fjölmiðla í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert