Mellberg á leiðinni til AC Milan?

Olof Mellberg er orðaður við AC Milan og fleiri lið.
Olof Mellberg er orðaður við AC Milan og fleiri lið. Reuters

Ítalska íþróttadagblaðið Gazzetta dello Sport fullyrðir að Evrópumeistarar AC Milan vilji fá sænska miðvörðinn Olof Mellberg frá Aston Villa en samningur hans við enska félagið rennur út að þessu keppnistímabili loknu.

Blaðið segir að útsendarar frá AC Milan hafi fylgst með Mellberg í leik Svía gegn Spánverjum á miðvikudagskvöldið en Svíar töpuðu þeim leik, 3:0. Hann er einnig sagður vera undir smásjánni hjá Juventus og Galatasaray.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert