United menn hræðast Torres
Fernando Torres fagnar marki sínu gegn Marseille í vikunni sem var hans 12. mark á leiktíðinni. Reutes
Carlos Queiroz aðstoðarmaður Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóra Manchester United segir algjört lykilatriði fyrir sína menn að halda aftur að Spánverjanum Fernando Torres þegar liðin mætast á Anfield á sunnudaginn. Torres, sem kom til Liverpool frá Atletico Madrid í sumar, hefur skorað 12 mörk fyrir Liverpool á leiktíðinni.
„Torres er eins og Örn. Hann sér svæði sem aðrir sjá ekki og hann fær um að koma sér í það með eða án boltans. Torres hefur staðið sig afar vel og ég hef hrifist af frammistöðu hans. Hann er mikill markaskorari og hefur breytt heilmiklu til hins betra í sóknarleik liðsins. Við verðum því að hafa afar góðar gætu á honum því hann er stórhættulegur," segir Queiroz.
„Ég hef verið á Englandi í fimm ár og ég hef á þessum tíma aldrei séð Liverpool eins sterkt á þessum tímapunkti eins og nú,“segir Queiroz.






