Benítez: Bjartsýnn á að Gerrard og Torres verði með

Steven Gerrard og Fernando Torres verða líklega klárir í slaginn …
Steven Gerrard og Fernando Torres verða líklega klárir í slaginn gegn Portsmouth. Reuters

Rafael Benítez knattspyrnustjóri Liverpool er bjartsýnn á að geta teflt Steven Gerrard og Fernando Torres fram þegar liðið tekur á móti Portsmouth á Anfield í ensku úrvalsdeildinni á morgun. Báðir voru fjarri góðu vegna veikinda þegar Liverpool beið lægri hlut fyrir Chelsea í deildabikarnum í fyrrakvöld.

„Ég varð að hvíla þá þar sem þeir áttu við veikindi. Hugmyndin var að stilla upp sterku liði gegn Chelsea og sama verður uppi á teningnum gegn Portsmouth. Ef þeir verða 100% klárir munu þeir spila og ég er bjartsýnn á að svo verði,“ segir Benítez.

Knattspyrnustjórinn segir að enska úrvalsdeildin verði í forgangi hjá liðinu á tímabilinu en Liverpool mætir Ítalíumeisturum Inter í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

  
  
 
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert