Tvöfalt hjá Manchester United

Cristiano Ronaldo og Alex Ferguson - bestir í janúar.
Cristiano Ronaldo og Alex Ferguson - bestir í janúar. Reuters

Cristiano Ronaldo var í dag útnefndur besti leikmaður janúarmánaðar í ensku úrvalsdeildinni og Alex Ferguson knattspyrnustjóri mánaðarins. Manchester United hrósaði því tvöföldum sigri í kjörinu.

Ronaldo hlaut viðurkenninguna í þriðja sinn en hann skoraði sex mörk í janúar og er markahæstur í deildinni með 19 mörk.

Ferguson hreppti sína viðurkenningu í 20. skipti en í fyrsta skipti í ellefu mánuði, eða síðan í febrúar 2007. United vann alla fjóra deildaleiki sína í janúar og burstaði m.a. Newcastle 6:0.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert