Rio Ferdinand fyrirliði Englands

Rio Ferdinand verður fyrirliði.
Rio Ferdinand verður fyrirliði. Reuters

Varnarmaðurinn Rio Ferdinand, sem leikur með Manchester United, verður fyrirliði enska landsliðsins sem mætir Frökkum annað kvöld á Stade de France í vináttulandsleik.

„Fabio Capello hefur staðfest að hann ætli að láta fyrirliðabandið ganga á milli manna í æfingaleikjum áður en hann tekur endanlega ákvörðun um hver þeirra muni bera það þegar kemur að leikjum í undankeppni HM,“ segir í tilkynningu sem knattspyrnusambandið enska sendi frá sér í hádeginu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert