Ronaldo: Skora bara í Manchester í staðinn

Cristiano Ronaldo tekur vítaspyrnuna á Nou Camp í kvöld.
Cristiano Ronaldo tekur vítaspyrnuna á Nou Camp í kvöld. Reuters

Cristiano Ronaldo fór illa að ráði sínu fyrir Manchester United en þessi frábæri leikmaður náði ekki að nýta vítaspyrnu sem United fékk á fyrstu mínútunum gegn Barcelona í kvöld. Ronaldo sagði eftir leikinn að fyrst hann skoraði ekki í kvöld þá yrði hann bara að gera það á Old Trafford í næstu viku.

„Fyrst ég skoraði ekki í kvöld þá verð ég bara að gera það í Manchester í næstu viku. Barcelona lék vel. Liðið var mikið með boltann en náði ekki að skapa sér nein færi að ráði. Við vörðumst vel og við fengum betri færi en Börsungarnir. Úrslitin voru góð fyrir okkur ég er alveg viss um að við förum með sigur af hólmi á Old Trafford og förum í úrslitaleikinn,“ sagði Ronaldo.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert