John Terry: Erum verðskuldað komnir í úrslitin

Leikmenn Chelsea í sigurvímu eftir sigurinn á Liverpool í kvöld.
Leikmenn Chelsea í sigurvímu eftir sigurinn á Liverpool í kvöld. Reuters

Það var þungu fargi létt af liðsmönnum Chelsea en í fjórðu tilraun tókst þeim að tryggja Lundúnaliðinu sæti í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. John Terry fyrirliði Chelsea var vitaskuld í sjöunda himni og sagði Chelsea vera verðskuldað komið í úrslitin.

„Þetta er frábært og ég held þetta sé verðskuldað eftir allan þennan barning síðustu árin. Mér fannst við sterkari aðilinn en við gerðum þetta helst til of erfitt,“ sagði Terry en Chelsea hafði tvívegis verið slegið út af Liverpool í undanúrslitum Meistaradeildarinnar, 2005 og 2007 og Mónakó árið 2004.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert