Giggs getur slegið leikjametið hjá Man Utd

Ryan Giggs á möguleika á að slá leikjametið hjá Manchester …
Ryan Giggs á möguleika á að slá leikjametið hjá Manchester United. Reuters

Ryan Giggs slær leikjamet Sir Bobby Charlton hjá Manchester United komi hann við sögu í þeim þremur leikjum sem United á eftir að spila á þessari leiktíð.

Sir Bobby lék á sínum ferli 759 leiki með Manchester United en Giggs lék sinn 757 leik í vikunni þegar hann kom inná í leiknum gegn Barcelona. Taki Giggs þátt í leiknum við West Ham í dag, gegn Wigan um næstu helgi og í úrslitaleiknum í Meistaradeildinni á móti Chelsea skráir Walesverjinn sig í sögubækur Manchestr-liðsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert