Leeds í úrslit umspilsins á ævintýralegan hátt

Gamla stórveldið Leeds United vann í kvöld góðan útisigur á Carlisle, 2:0, í seinni leik liðanna í undanúrslitum umspilsins um sæti í ensku 1. deildinni í knattspyrnu.

Carlisle hafði unnið fyrri leikinn í Leeds, 2:1, og  Leeds sigraði því samanlagt 3:2. Leeds mætir annaðhvort Southend eða Doncaster í úrslitaleik á Wembley um sætið í 1. deildinni en Swansea og Nottingham Forest fóru beint uppúr deildinni.

Jonathan Howson kom Leeds yfir á 10. mínútu og liðin stóðu því jöfn, 2:2. Allt stefndi í framlengingu en í uppbótartíma skoraði Howson aftur og heimamenn sátu því eftir með sárt ennið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert