Windass skaut Hull upp í úrvalsdeildina

Dean Windass markaskorari Hull í baráttu við leikmenn Bristol City.
Dean Windass markaskorari Hull í baráttu við leikmenn Bristol City. Reuters

Hull City var rétt í þessu að tryggja sér sæti í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í fyrsta skipti í 104 ára sögu félagsins en liðið sigraði Bristol City, 1:0, í úrslitaleik um þriðja lausa sætið í úrvalsdeildinni á Wembley.

Það var hinn gamalreyndi Dean Windass, 39 ára gamall, sem skoraði sigurmarkið með glæsilegu viðstöðulausu skoti frá vítateig á 39. mínútu og þrátt fyrir harða hríð að marki Hull í seinni hálfleik tókst liðinu ekki að jafna metin.

Dean Windass skoraði glæsilegt mark.
Dean Windass skoraði glæsilegt mark. Reuters
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert